Það er alltaf gaman að bera saman og rýna í þær fjölmörgu “gleðilega hátíð” auglýsingar sem dynja á neytendum um hátíðirnar. Sérstaklega er þetta áberandi í prenti, að minnsta kosti voru fá fyrirtæki sem líkt og Síminn fóru í flotta sjónvarpsframleiðslu til að óska Íslendingum gleðilegra jóla.
En samanburður þessara auglýsinga er eitt, að skoða markmið þeirra er annað.
Er eitthvað sérstakt markaðslegt markmið með þessum auglýsingum annað en að “vera með”? Í sumum tilvikum er lítið innihald annað en falleg ljósmynd og þakkir fyrir síðastliðið ár. Lítið virðist vera til sparað, Eimskip til að mynda setti mikinn kraft í þetta þessi jólin og birti hverja opnuna á fætur annarri í dagblöðum landsins, einungis birtingarkostnaðurinn þar hleypur á nokkrum milljónum.
Það er gott og vel, en væri þessum peningum betur varið í sértækari markaðsaðgerðir? Aðgerðir sem væru beinlínis fallnar til þess að auka aðgreiningu þessara fyrirtækja frekar en að bætast í hópinn og vera samdauna?
Eða er þetta algerlega frábært og hátíðarlegt og styður við uppbyggingu þessara vörumerkja?
stjanigunnars
January 4, 2011 at 7:59 pm
Hef ekki mikiðálit á þessari standpínukeppni. Er ekki viss um að ég hefði getað talið upp þau fyrirtæki sem voru með án þess að vera minntur á þær i þessari færslu.
Geti ekki verið meira sammála ykkur að það hefði verið gaman að eyða þessum peningum til gagns fyrir neytendur.
Bjarni Kr
January 5, 2011 at 9:04 am
Klárlega uppbygging á “Ímynd fyrirtækis” sem segir “we care about you” 🙂
Stjanigunnars
January 5, 2011 at 7:31 pm
Eru kanski til fjöl mettuð vörumerki sem eru óholl, líkt og fjölmettaðar fitur sem fólk keppist við að hlaða í sig til að eiga fyrir almennilegu áramótaheiti í ræktinni? http://selnd.com/goJ6Ma