Íslenska landsliðið á EM og styrktarmarkaðssetning fyrirtækja

Það er gaman að fylgjast með því hvernig íslensk fyrirtæki, þá helst styrktaraðilar HSÍ, hafa tekið við sér, í kringum Evrópukeppnina sem nú fer fram í Austurríki. Það var dapurt að sjá að í kringum Olympíuleikana fór einhvern veginn allt púður úr mörgum styrktaraðilum en nú virðast þeir hafa fengið vind í seglinn.
Icelandair ber samt sem fyrr höfuð og herðar yfir hin fyrirtækin með mjög flottri útfærslu á vefsiðunni “í blíðu og stríðu”. Þar leyfa þeir áhangendum landsliðsins að búa til sínar eigin videokveðjur og ná að mynda góða stemmningu á síðunni.
Það sem er hinsvegar athygliverðast er að einn aðalstyrktaraðili HSÍ, Arion Banki virðist algerlega steingeldur þegar kemur að því að nýta sér þennan viðburð. Það er sérstaklega með ólíkindum ef haft er í huga að af öllum þeim fyrirtækjum sem nú styrkja HSÍ, þá er Arion banki sennilega það fyrirtæki sem mest þyrfti á vindi í seglinn markaðslega séð. Ef rétt hefði verið haldið á spilunum hjá Arion banka þá ættu þeir að hafa komið fram með snjallt stuðningsefni í tengslum við EM; og þar með reynt að bæta ímynd fyrirtækisins. Það er fátt ef eitthvað betur til þess kjörið en tenging við strákana okkar þegar vel gengur. Meira að segja á síðu bankans, arionbank.is, er ekki staf að finna um landsliðið eða neitt tengt styrk Arion við þá.
Og ef menn eru hræddir við umræðuna um bruðl í markaðsstarfi þá er spurningin einfaldlega sú, af hverju í ósköpunum er þá verið að eyða fé í að styrkja HSÍ, ef fyrirtækið (vörumerkið) ætlar ekkert að fá út úr því ?

Prev PostAdidas og Star Wars – CoBranding
Next PostÁætlanir gera ekkert gagn...

2 Comments

  • Gyða Björnsdóttir

    January 20, 2010 at 8:23 pm

    Ég hef heyrt að fyrirtæki verði að eyða a.m.k. 1/3 af styrktarupphæðinni í að auglýsa samstarfið til þess að fá eitthvað út úr því ímyndarlega séð! Hinsvegar er misjafnt hvort sum fyrirtæki einfaldlega láta duga að vera aðalstyrktarðilar og eyða ekki meira en samningurinn segir um! Og ekki haf allir budget í það í dag því miður. En mjög góðar vangaveltur :O)

    svgReply
  • Stebbi Gunn

    January 20, 2010 at 9:32 pm

    Það er rétt, það er yfirleitt talað um lágmark 1/3 af styrktarupphæðinn, en af einhverjum ástæðum hafa Íslensk fyrirtæki aldrei komist uppúr þeim hjólförum að vera að “styrkja” þetta, en ekki að líta á þetta sem markaðslega fjárfestingu. Sem betur fer er þetta þó aðeins að breytast. Varðandi budget, þá hefur Arion Banki klárlega budget í að blása aðeins lífi í þetta samstarf, nóg auglýsa þeir þessa dagana.

    svgReply

Leave a Reply to Stebbi Gunn Cancel reply