Það er öllum sama um þig

það eru ansi mörg fyrirtæki haldin þeirri ranghugmynd að fólk hafi áhuga á því sem þau eru að gera.
Það er rangt.
Fólk hefur áhuga á því sem snertir það sjálft.  Það hefur áhuga á því sem léttir þeim lífið, eykur velferð þeirra, bætir hag þeirra, eflir það að einhverju leiti, eða bara skemmtir því.
Fólki er slétt sama um þitt fyrirtæki í sjálfusér.  Ef fyrirtæki er ekki að gera eitthvað sem snertir hag fólks, mun fólk ekki versla við viðkomandi fyrirtæki og ekki fylgjast með því.
Þetta er mikilvægt að hafa í huga þegar kemur að samfélagsmiðlum.  Því þrátt fyrir að ég kaupi ákveðna vöru, þýðir það ekki að mig langi endilega að vera vinur hennar.  Stundum er ég bara að kaupa sápu.  Það þýðir ekki að ég sé sápu aðdáandi.  Það þýðir bara að mig langi ekki ganga um eins og skítalabbi.
Ég hef ekki áhuga á að gerast aðdándi sápuframleiðandans á Facebook, bara vegna þess að hann setti upp síðu og byrjaði að setja inn myndir af vörunni og segja mér að bjóða öllum vinum mínum að vera aðdáendur líka.
Ef þú sem fyrirtæki ert að pæla í að mæta til leiks á samfélgsmiðlunum skaltu vera viss um að vera með stefnu.  Samfélagsmiðlar eru eins og hvert annað markaðstól.  Það þarf að vera plan.  Hvað ætlar þú að gera, fyrir hvern og hvernig.  Ef þú ætlar ekki að gera eitthvað fyrir “aðdáendur” þína er tilgangslaust að byrja.
Ef þú ert ekki að gera eitthvað fyrir fólk, er því sama um þig (sem fyrirtæki).

Prev PostAllt getur orðið manni til lærdóms
Next Post"um okkur" kostanir

4 Comments

  • gphinriks

    April 26, 2010 at 9:46 am

    Þetta er skuggalega satt! Og glatað að það skuli vera þannig. Samt reyni ég að leggja mig fram við að hlusta á aðra. Fara á til dæmis http://8tracks.com og tengjast eitthverjum í gegnum tónlist. En samt þrátt fyrir allt ef hann er ekki að followa MIG þá er ég ekkert að followa hann.

    svgReply
  • Egill Harðar

    April 26, 2010 at 10:10 am

    Áhugavert að skoða í þessu samhengi færslur eins og þessa um 10 ástæður þess að fólk deilir efni á Netinu : http://thefuturebuzz.com/2008/06/16/10-reasons-we-share-content-on-the-web/

    svgReply
  • Hörður Harðarson

    April 26, 2010 at 10:34 am

    Þessi fyrirsögn “Það er öllum sama um þig” vísar til fyrirtækja. Sem betur fer eiga flestir einstaklingar einhvern hóp sem ekki er sama um þá og vilja í einlægni vita hvað viðkomandi er að gera og hugsa.
    Það á aftur á móti sjaldan um fyrirtæki. Sambandið milli fyrirtækja/vörumerkja og einstaklinga er oftast byggt á gagnkvæmu notagildi, en ekki tilfinningum.
    Vissulega geta vörumerki náð það sterkri stöðu að notandinn upplifir tilfinningarlega tengingu. Það er meira að segja nákvæmlega það sem gott vörumerki á að stefna að – sterkar, jákvæðar og einstakar tengingar milli vörumerkis og einstaklings. Það er samt efni í nýja grein.

    svgReply

Leave a Reply to Egill Harðar Cancel reply