Hvort er eðlilegra að vera nakinn í sturtu eða ekki?

Þessi auglýsing var á baksíðu Eiðfaxa 1984.
Nú get ég ekki sagt til um það hvort hún orsakið blaðaskrif, umræður í útvarpi eða í kaffistofum landsmanna í þá daga.  Það var auðvitað ekki til neitt blogg á þessum tíma svo að þeir sem voru virkilega pirraðir höfðu ekki sama tækifæri og nú til að sáldra pirri sínu yfir samborgarana.
Það verður að teljast líklegt að í dag myndi svona auglýsing vekja upp neikvæð viðbrögð. Facebook yrði undirlagt, Reykjavík síðdegis fengi nokkur símtöl og einhverjir bloggarar myndu láta  láta vaða yfir Vatnsvirkjann og svo er ekki ólíklegt að eitt stykki “boycott” færi í gang.
Varla er hægt að segja að fyrirsætan sé í erótískum stellingum, en hún berar sig svo sannarlega meira en gengur og gerist í auglýsingum dag.  Spurningin er hvort þetta gerir hlutgerir konur, er niðrandi eða óæskilegt.  Eða er eðlilegt að vera nakinn í sturtu og sýnir auglýsingin kannski bara eðlilega notkun á vörunni sem er verið að auglýsa?

nakin í sturtu

Eiðfaxi 1984


 
 

Prev PostBranding tilvitnun – des’12
Next PostKæri Stefán - ert þú kona?

2 Comments

  • Eva

    December 10, 2012 at 4:20 pm

    Mér sýnist hún nú alveg vera í “erótískum” stellingum. Allavega er hægri hönd hennar til alls vís. Einnig er alveg á hreinu að hverjum auglýsingin beinist sbr. UndirritAÐUR.
    Ekki veit ég hvort það telst eðlileg notkun á sturtuklefa að hafa hann opinn meðan sturtan er í gangi? Og svo mætti lengi sáldra pirri….

    svgReply
    • Hörður Harðarson

      December 10, 2012 at 5:48 pm

      Með réttu hugarfari má sannarlega ímynda sér að hægri höndin sé til alls vís.
      En það er rétt, að sturta sig með opinn klefann er ekki eðlileg notkun.

      svgReply

Leave a reply