Það eru væntanlega fáir sem ekki vita af því að heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu hefst á föstudaginn. Það má því ætla að hluti þessa blogs hér hjá Vert muni litast af því næstu vikurnar og þeim markaðslegu þáttum sem í því felast.
Einn helsti þátturinn þar er jú markaðssetning styrktaraðila sem að mótinu koma, sem og þeirra sem reyna að ná athygli fólks í gegnum mótið en án þess að kosta það beint. Á ensku er þetta auðvitað þekkt sem ambush marketing, íslensk þýðing á því gæti verið skæruliðamarkaðssetning.
Eins er gaman að fylgjast með íslenskum fyrirtækjum og hvernig þau reyna að selja vörur sínar eða hafa áhrif á ímynd sína með allskonar boðmiðlun í kringum keppnina. Eitt það athyglisverðasta hingað til hlýtur að vera HM leikur Keflavíkurflugvallar, eða “HM leikur KEF” eins og hann er auglýstur víða á netmiðlum.
Litlu hefur verið til sparað til að gera þennan neitleik glæsilegan. Flott undirvefsíða hönnuð og greinilegt að allt viðmót er eins og best er á kosið. Hinsvegar hlýtur það að vekja spurningar hjá manni af hverju Keflavíkurflugvöllur er að reyna að grípa inná HM æði þjóðarinnar. Getur maður eins átt von á HM leik lífstykkjabúðarinnar?
Aðeins takmarkaður hluti Íslendinga mun fara í gegnum flugvöllinn á næstu mánuðum og því er spurningin hvort að þarna sé verið að beita réttum aðferðum við markaðssetningu. Er ætlunin að auka vitund Íslendinga á verslunum Keflavíkurflugvallar? Eða er markmiðið kannski að tengjast þeim gildum sem HM stendur fyrir?
Arnar Freyr
June 9, 2010 at 6:07 pm
Sæll Stebbi,
Takk fyrir þessa umfjöllun um HM leikinn hjá okkar. Það er virkilega ánægjulegt að sjá að þið takið eftir leiknum og viljið skapa umræðu um hann.
Þér er velkomið að hafa samband við mig símleiðis og við getum farið yfir hugsunina, markmið o.fl. vegna HM-leiksins.
Að lokum þá tel ég það nokkuð augljóst að það er ekki sami markhópur hjá okkur og Lífstykkjabúðinni 🙂
Með þakklæti,
Arnar Freyr Reynisson
Markaðsstjóri KEF
P.s endilega skráðu þig til leiks á http://www.kefairport.is/hm-leikur
og ekki gleyma að gerast aðdáandi okkar á Facebook. Hver veit nema að þú vinnir e-h skemmtilegt.
JBJ
June 9, 2010 at 10:04 pm
Mér fannst þetta einnig pínu skondið að sjá hver var að auglýsa þar sem maður gengur ekki inn af götunni til að versla á Keflavíkurflugvelli heldur þarf að hafa farseðil og það er nú ekki ókeypis.
Annars er auglýsingalaus HM-leikur á http://leikir.betra.is/wc2010/ líkt og síðustu 6 ár frá því að Copa America 2004 var í gangi. Fjórtyngdur meira að segja.
*Undirritaður ber ábyrgð á auglýsingalausa og verðlaunalausa leiknum
Stebbi Gunn
June 10, 2010 at 9:53 am
Sæll Arnar,
takk kærlega fyrir commentið. Það er gaman að fá tækifæri til að fara yfir þetta með þér, og það er einmitt tilgangur bloggsins okkar hjá Vert Markaðsstofu að reyna að skapa umræðu um markaðsmál á Íslandi enda skortur á slíkum vettvangi. Það væri frábært ef þú gætir veitt okkur smá innsýn inní hvaða markmið þið settuð með leiknum, svona án þess að ljóstra upp um einhver viðkvæm leyndarmál vonandi.
Að sjálfsögðu er ég búinn að gerast aðdáandi leiksins á Facebook enda er þetta frábærlega uppsett hjá ykkur, því ber auðvitað að hrósa ítrekað.
mbk,
Stebbi
Arnar Freyr
June 11, 2010 at 12:18 pm
Sæll Stebbi
Ég skal gera það með glöðu geði en það verður samt að bíða þar til að herferðinni líkur.
En svona aftur að greininni þá hittir þú naglann á höfuðið varðandi eitt af markmiðum leiksins. Og, ég get sagt þér að það tengist alla vega ekki gildum HM keppninnar 🙂
Bestu kveðjur,
Arnar Freyr
Stebbi Gunn
June 11, 2010 at 1:08 pm
Sæll Arnar,
frábært, það verður gaman að fá innsýn í það. Á meðan ætla ég að njóta leiksins!
Arnar Freyr
June 11, 2010 at 10:16 pm
Eitt en, ég hvet þig til að fylgjast með á FB síðunni og kanna hvort að þú áttir þig á markmiðunum, tilganginum o.fl.
Svo vil ég þakka þér fyrir góð orð í garð sjálfs leiksins
kv.
Arnar Freyr