Flott gert hjá Intel – myndband

Intel er fyrirtæki sem almenningur ætti í raun ekki að þekkja.  Þeir framleiða eitthvað sem almenningur skilur ekki og sér aldrei.  Samt er þetta með þekktari vörumerkjum heims.
Þeir voru frumherjar í því sem kallast “Ingredient branding”.  Örgjörvar eru í raun eitt af þeim hráefnum sem þarf að nota til að búa til tölvu.  Líkt og hveiti í köku.  Með snilldar markaðsherferð tókst Intel að byggja upp sterkt vörumerki.  Þeim tókst að gera brandið sitt að gæðastimpli sem tölvuframleiðendur heims vildu setja á tölvurnar sínar og það sem var enn betra, vildu ólmir setja aftan við allar auglýsingar frá sér.
Nýlega setti Intel nýjan örgjörva á markað.  Eitthvað sem er agalega óáhugavert fyrir okkur almenninginn.  Til að byggja upp eftirvæntingu fyrir þessum nýja örgjörva framleiddu þeir þessa afbragðs auglýsingu.

Prev PostGetur þú nefnt sterkasta íslenska vörumerkið?
Next PostNokkrar af fyndnustu Super Bowl auglýsingum allra tíma

Leave a reply