Um og upp úr síðustu aldamótum var blog (stytting a “web log” og blogg á íslensku) það heitasta á netinu. Allir voru að blogga, um allt og ekki neitt. Í dag, um 10 árum síðar hefur umhverfið breyst. Þeir sem höfðu ekkert um að blogga eru flestir hættir því og láta stöðu uppfærslur á Facebook duga. Á sama tíma hefur talsverður fjöldi málsmetandi manna tekið upp á því að blogga. Notkunin hefur þannig þroskast og fjöldi góðra blogga til sem fjalla um allt mögulegt, frá heitustu tónlistinni til pólitískrar umræðu.
Ein tegund blogga sem farið hefur minna fyrir hér á landi eru fyrirtækja blogg (corporate blogs). Erlendis hefur þessi tegund blogga vaxið hratt undanfarin ár og í dag líta mörg fyrirtæki á blogg sem nauðsynlegan hluta af samskipta og markaðsstarfi sínu. Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa virkilega nýtt sér blogg í starfsemi sinni er Southwest Airlines, Zappos, Google, Adobe, American Express, Boeing, Coca-cola og fleiri og fleiri. Oftar en ekki eru blogg fyrirtækja í umsjón eins eða fleiri starfsmanna sem sjá um að rita efni og eiga samskipti við lesendur í takt við fyrirfram ákveðna stefnu viðkomandi fyrirtækis.
Nokkrir kostir fyrirtækja blogga:
En það er fleira…
Í apríl 2010 sendi HubSpot frá sér tölur um virkni samfélagsmiðla. Þar kom eftirfarandi fram:
(Uppfærða tölfræði um þetta má finna hér – http://bit.ly/KWXtzQ )
Blogg er í eðli sínu óformleg og persónuleg leið til þess að eiga samskipti. Fyrirtæki sem ætla sér að ná árangri verða að tileinka sér þá nálgun. Það nennir enginn að lesa yfir pródúserað kynningarefni fyrirtækja sem einhver hefur ákveðið að kalla blogg.
Ef þú trúir ekki enn getur verið að Seth Godin sannfæri þig:
[yframe url=’http://www.youtube.com/watch?v=livzJTIWlmY’]
Er þitt fyrirtæki með blogg?
*þetta er endurbirt grein frá eldra bloggi VERT.